Menu Content/Inhalt
Forsíða
Desemberútskrift FÁ

Nú væri gott að heyra frá nemum sem hyggja á útskrift frá FÁ, þann 19. desember næstkomandi. Útskrifað verður frá Digraneskirkju að þessu sinni og hefst útskriftin kl. 14.

Gögnum þarf síðan að skila á skrifstofu ekki síðar en 1. desember nema um annað hafi verið samið. Þar þarf að koma fram tímafjöldi og staðfesting meistara eða umsjónaraðila á að samningi sé lokið.

 
Nemanuddið að rúlla í gang

Nú þegar fyrsta kúrsi nuddskólans, klassísku nuddi er lokið er hið sívinsæla nemanudd að rúlla af stað. Markmiðið með því er að nemendur læri betur að beita því sem þeir hafa lært og þjálfi sína færni.

 Verðið er það sama og áður kr. 2000 fyrir klukkustundar nudd. Sjá til hliðar undir nemanudd. Þeir sem þurfa á sértækri meðhöndlun að halda snúi sér til reyndari nuddara á nuddstofum.

 
Steinanudd
Í vikunni gerði Júlía Brynjólfsdóttir sér ferð til höfuðborgarinnar til að kynna nemendum nuddskólans steinanudd. Þetta skemmtilega og áhrifaríka form hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarið og verður hún með námskeið í Reykjavík síðar í vetur.
Nánar...
 
Námið rúllað af stað á báðum stöðum
Fyrstu kennsluhelgi í klassísku nuddi á Akureyri er lokið og er því námið komið af stað á báðum stöðum. Hóparnir lofa báðir mjög góðu og mega lysthafendur því búast við frábærum nuddurum úr þessum hópum eins og endranær.
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 19 - 27 af 106

Gestir á vefnum

Núna er/u 31 gestir inni

Skoðanakönnun

Ferð þú inn á þessa vefslóð af því að ...
 

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Úr myndasafni


 

 

--------------