|
Frábærum námskeiðum frá advanced-trainings um hrygg og hryggskekkju er lokið í nuddskólanum. 
Á meðan hryggjarnámskeiðið fjallaði mikið um fram og afturbeygju hryggjar og hvað hægt væri að gera með vöðva, liðbönd og bein til að opna og auka hreyfigetu var hryggskekkjunámskeiðið mikið um greiningu á mismunandi skekkjum og snúningi sem er á hryggjarliðum í því sambandi. |
|
Nánar...
|
|
|
Sagt er að lengi búi að fyrstu gerð á það vel við um ungbarnanudd. Í vetur erum við svo rík í NÍ að hafa nemanda sem átti barn í febrúar og önnur á von á barni í maí. Tækifærið var því nýtt og þessir nemendur komu með barn og bumbu til kennslu í meðgöngu- og ungbarnanuddi. |
|
Nánar...
|
|
|
Kennarar Nuddskóla Íslands fjölmenntu norður til Akureyrar til að gleðjast með nemendum NÍ á Akureyri sem voru að útskrifast laugardaginn 15. mars. Hér er útskriftarhópurinn með skólastjóra NÍ.  |
|
Nánar...
|
|
|
Nuddskóli Íslands hefur lánað Sonju Traskback og Maiju Frauenknecht frá Finnlandi aðstöðu til að halda námskeið í Rosenaðferð. Námskeiðið verður haldið í Nuddskóla Íslands síðustu helgina í apríl. Auglýsing frá þeim stöllum á ensku er hér fyrir neðan í nánar. Félagsmenn FÍHN og nemar NÍ geta reiknað með einhverjum afslætti á námskeiðin sem nemur þóknun fyrir leigu á húsnæðinu. |
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 55 - 63 af 106 |