Menu Content/Inhalt
Forsíða
Nýja aðstaðan í FÁ tilbúin PDF Print Senda

Hin nýja aðstaða sem nuddbrautin hjá FÁ verður staðsett í er nú tilbúin enda hefst námið þriðjudaginn 23. ágúst.

Aðstaðan er rúmgóð og rúmar vel þá 7 bekki sem notaðir verða til kennslu. Eina sem komið hefur í ljós að kannski vantar er opnanlegt fag á glugga en hins vegar er ný loftræsting og á eftir að koma í ljós hversu öflug hún er.

Næsta vetur verða tveir hópar við nám í skólanum, annar verður frá 8.10-12 og hinn frá 13-16.50. Ekkert verður kennt um helgar eins og áður.

Kennslustjóri nuddbrautar hefur verið ráðinn, Finnbogi Gunnlaugsson frv. skólastjóri nuddskólans. Guðrún Narfadóttir mun einnig verða kennslustjóri fram í nóvember þegar hún tekur við starfi áfangastjóra í FÁ.

Námið verður með aðeins breyttu sniði. Á haustönn kemur inn nýr áfangi Inngangur að heilsunuddi. Kennari í honum verður Finnbogi Gunnlaugsson. Annar nýr áfangi kemur einnig inn, Mat og greining. Kennari í honum verður Fríða N. Hauksdóttir, osteopati. Nýr kennari hefur verið ráðinn til að kenna íþróttanuddið en það er hinn nýútskrifaði íþróttafræðingur, Víðir Þór Þrastarson, sem einnig gegnir embætti formanns félagsins. Það má því segja að kennarastaða í íþróttanuddinu fylgi áfram formannsembættinu en áður hafa bæði Guðbrandur og Guðmundur Skúli gengt því hvoru tveggja. Síðan verða Eygló Benediktsdóttir og Finnbogi Gunnlaugsson áfram með svæðanudd og klassískt nudd. Þeir áfangar minnka báðir að umfangi um eina einingu til að rýma fyrir hinum nýju kúrsum og verða 4 einingar hvor.

 
< Fyrri   Næst >

Gestir á vefnum

Núna er/u 5 gestir inni

Skoðanakönnun

Ferð þú inn á þessa vefslóð af því að ...
 

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Úr myndasafni


 

 

--------------