| CST2 |
|
|
|
|
Undanfarin 3 ár hefur Erla Ólafsdóttir kennt CST1 sem hluta af námi við Nuddskóla Íslands. Nú hefur Erla hlotið fullgildingu sem kennari í CST2 og vill nuddskólinn því í samstarfi við Erlu bjóða þeim nemendum sem lokið hafa CST1 framhald á sinni menntun, með því að taka CST2 fyrir mjög sanngjarnt verð.
CST2 er dýpkun á efnisþáttum sem kenndir voru á CST1. Námslýsingu er hægt að sjá a vefsíðu www.upledger.is/skyldunamskeid.html Kennt verður í 4 daga 31. mars, 1. apríl, 2. apríl og 3. apríl í nuddkennslustofu FÁ við Ármúla. Nemendur fyrri ára nuddskólans geta fengið þetta námskeið á kr. 10.000 (í því fylgir skráning til Upledger Institute) sem er aðeins brot af því sem það kostar á almennum markaði. Félagsmenn sem hafa tekið CST2 áður og vilja taka aftur til upprifjunar eru líka velkomnir. Skráningar fara fram á póstfag nuddskólans, Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því um að gera að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér pláss á námskeiðinu. Það er líka hagræði fyrir skólann að vita fjölda áhugasamra sem fyrst til að geta gert sér grein fyrir umfangi námskeiðsins. |
| < Fyrri | Næst > |
|---|