Menu Content/Inhalt
Forsíða
Nuddnám á Akureyri PDF Print Senda

Margir hafa haft samband undanfarin 2 ár varðandi þann möguleika að hafa nuddnám á Akureyri aftur og talverður listi af fólki víðs vegar að af Norðurlandi sem hafa skráð sig. Nú er möguleiki að þetta geti orðið aftur að veruleika.

Nokkrir knáir Akureyringar hafa nú þekkst á það að standa fyrir svona námi á Akureyri. Það er háð því að næg þátttaka fáist en það er dýrt að halda úti svona námi og þurfa 16 nemendur að vera klárir til þess að af þessu geti orðið.

Forsvarsmaður námsins er Preben Pétursson og hans netfang er .

Verknámið spannar yfir 3 annir og mun hefjast í janúar, nánar tiltekið föstudaginn 13. janúar 2012. Kennt verður eftirtaldar helgar.

13.-15. janúar Klassískt nudd

27.-29. janúar Klassískt nudd

10.-12. febrúar Klassískt nudd

24.-26. febrúar Klassískt nudd

11. - 9. mars Vöðvateygjur

23.-25. mars Íþróttanudd

13.-15. apríl Íþróttanudd

27.-29. apríl Íþróttanudd

11.-13. maí Vefjalosun

Kennt verður frá 17 - 21 á föstudögum. 9 - 16 á laugardögum og sunnudögum. Kennsla fer fram á Furuvöllum 13 á Akureyri.

 
< Fyrri   Næst >

Gestir á vefnum

Núna er/u 9 gestir inni

Skoðanakönnun

Ferð þú inn á þessa vefslóð af því að ...
 

Dagatal

February 2012
S M T W T F S
2930311 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Úr myndasafni


 

 

--------------